Útburður

Útburður er fyrsta (af vonandi mörgum) skáldssagan í fullri lengd sem ég skrifa. Hún er blanda af því sem ég elska: tíundiáratugurinn, draugar, þjóðfræði, geimverur, kristin trú, morð, samsæriskenningar og hvaðeina.

Auk þess að vera höfundur bókarinnar, þá sá ég einnig um umbrot og hönnun á forsíðu (ljósmyndun og photoshop).

Hægt er að kaupa bókina sem kilja á …
 

… og sem rafbók á Emma.is

Einnig er ég með eintök til sölu á litlar 2500 kr. Endilega hafið samband í gegnum tölvupóst, síma (698-6694) eða Facebook ef þið viljið fjárfesta í eintaki beint af mér.

Þann 5. nóvember 1993 eiga geimverur að lenda á Snæfellsjökli. Það sem alheimur veit ekki er að viðburðurinn er partur af mun stærri atburðarás sem tengist ekki bara íslenskri þjóðtrú, heldur allri trú sem við þekkjum.

Útburður er blanda af morðgátu í smábæ, hrollvekju og vísindaskáldskap. Hún segir frá Lísu, ungri konu sem vinnur hjá íslenskri stofnun sem sér um allt það sem ber að halda leyndu. Lísa er send í verkefni til Hulduvíkur, sem er einangraður og falinn smábær við rætur Snæfellsjökuls.

Þar kemst hún fljótt að því að þó hún sé vön ýmsu yfirnáttúrulegu, þá er hún ekki tilbúin fyrir það sem henni bíður…