Leikmaður les Biblíuna: Part VI
Í eftirfarandi texta verður farið yfir kafla 21 til 23 í Fyrstu Mósebók.
Sara vond að venju
Sara eignast son, Ísak, á hundraðasta aldursári og getur ekki hætt að minna fólk á hve gömul hún í raun er og hve fáránlegt það er að hún sé að eignast barn. Abraham umsker drenginn eins og Guð vill og heldur til veislu þegar hann hættir á brjósti.
Einn daginn sér Sara son Hagar (soninn sem Abraham eignaðist þegar hann nauðgaði henni með leyfi Söru) og hún skipar Abraham að reka ambáttina og son hennar og Abrahams burt.
Abraham er ekki hrifinn af þessari hugmynd en Guð segir honum að hætta þessu væli og að hann eigi að hlýða Söru í einu og öllu. Afkomendur hans munu verða kenndir við Ísak en þrælabastarðurinn mun einnig verða að þjóð.
Daginn eftir fer Abraham með Hagar og strákinn út í eyðimörk og skilur þau eftir. Þegar vatnið klárast tekur Hagar því mjög illa en Guð segir henni að tjilla og bendir henni á læk.
Guð og Abraham sýna sín réttu andlit
Guð talar við Abraham og segir honum að fara með son sinn Ísak til Móríalands og fórna honum sem brennifórn. Abraham gerir það sem drottinn segir og fer með drenginn, býr til altari og bindur hann við viðinn. Abraham er að gera sig tilbúinn til að stinga son sinn til dauða og brenna hann, þegar engill Guðs stoppar hann.
Þar sem að Abraham var tilbúin að drepa son sinn fyrir Guð, þá blessar Guð hann og hans afkomendur.
Þess má geta, að ég get núna bara séð Ralph Fiennes fyrir mér þegar ég hugsa um Guð. Guð virðist vera blanda af Voldemort og nasistanum sem Ralph lék í Schindler’s List.
Stuttu seinna deyr illmennið hún Sara, aðeins 127 ára gömul.

