Topp 20: Hlutir sem eru bannaðir í Biblíunni

Fólk hefur alltaf afsökun fyrir öllu og þá sérstaklega, þegar fólk hefur fordóma sem eru ekki vel liðnir í nútíma samfélagi. Oft er Biblían notuð sem skjöldur. Fólk réttlætir hatur þeirra í garð annara með því að segja: „Ég er bara að fara eftir Guði!“ Margir verja sérstaklega einstaklinga sem bera fordóma í garð þeirra sem finna ást með sama kyni. Þá tekur fólk upp hanskan og segir að það sé bara verið að fara eftir því sem Biblían segir. Að það megi alveg mismuna fólki eftir kynhneigð útaf þessari gömlu bók. En, það er svo spes að í Biblíunni er rosalega margt bannað en fólk virðist vera algjörlega sátt við að velja úr hvað þau trúa eftir því hvað hentar hverju sinni. Ég segi að það sé ekkert annað en hræsni. Ef þú ætlar að lifa eftir orði Guðs, lifðu þá eftir því.

Hér eru topp 20 hlutir sem Biblían bannar. Ef þú ætlar að nota eitthvað af þeim sem afsökun fyrir eigin fordóma, þá skaltu lifa sjálfur eftir öllum hinum.

Skammstafanir:
GT = Gamla Testamenntið
NT = Nýja Testamenntið

#20 Svínakjöt

GT: Þriðja Mósebók 11:7 „… þið skuluð telja svín óhreint því að það hefur klofna hófa, það hefur klaufir en jórtrar ekki.“

Það má hvorki borða svínakjöt né snerta hræ af svíni. Af hverju? Því svín hafa klofna hófa en þau jórtra ekki. Svín eru óhrein og sá sem borðar þau eða snertir verður óhreinn einnig.

#19 Humar, rækjur og skelfiskur yfir höfuð

GT: Þriðja Mósebók 11:10-12 „En öll smádýr, sem vötnin eru kvik af, og allar þær skepnur, sem lifa í vatni en hvorki hafa ugga né hreistur, skulu vera ykkur viðurstyggð. Sökum þess að þau eru ykkur viðurstyggð skuluð þið ekki neyta þeirra og ykkur skal bjóða við hræjum þeirra. Lagardýr, sem hvorki hafa ugga né hreistur, skulu vera ykkur viðurstyggð.“

Öll dýr sem lifa í vatni en hafa hvorki ugga né hreistur, eru viðurstyggð og okkur skal bjóða við hræjum þeirra fremur en að djúpsteikja og borða með súrsætri sósu.

#18 Að snyrta skegg sitt

GT: Þriðja Mósebók 19:27  „Þú skalt ekki snyrta skegg þitt.“

Sjáið hér fyrir ofan hvað Snorri í Betel lifir í mikilli synd? Með þetta fallega snyrta skegg! Að hann skuli ekki reyna að lifa í sátt með Drottni fremur en að haga sér svona! Guð hatar snyrt skegg og tekur sérstaklega fram að prestar mega alls ekki jafna skegg sitt. Prestar mega samt „Saurga sig á líki ógiftrar systur sinnar.“ Okei… Nota bene, þá er Snorri forstöðumaður en ekki prestur en reglan gildir um alla.

#17 Að vera klæðskiptingur

GT: Fimmta Mósebók, 22:5 „Kona skal ekki bera karlmannaklæði og karlmaður skal ekki klæðast kvenfatnaði því að hver sem það gerir er Drottni, Guði þínum, viðurstyggð.“

Hvorki kona né maður má klæðast fötum sem fatahönnuðir hönnuðu fyrir hitt kynið. Það finnst Guði vera viðurstyggð.

#16 Óhreinar konur

GT: Þriðja Mósebók 12:2-8Langur texti, smelltu hér til að lesa.

GT: Þriðja Mósebók 15:19-32Langur texti, smelltu hér til að lesa.

GT: Þriðja Mósebók 18:19 Þú mátt ekki nálgast konu, sem er óhrein af tíðum sínum, til að bera blygðun hennar.“

GT: Þriðja Mósebók 18:29Því að allir, sem fremja eitthvað af þessu viðurstyggilega athæfi, verða upprættir úr þjóð sinni.“

GT: Þriðja Mósebók 20:18 „Leggist maður með konu með tíðir og berar blygðun hennar hefur hann berað uppsprettu hennar og hún hefur sjálf berað uppsprettu blóðs síns. Þau skulu bæði upprætt úr þjóð sinni.“

Konur eru óhreinar í sjö daga eftir að hafa fætt strák og 14 daga eftir að hafa fætt stelpu. Þær eru einnig óhreinar þegar þær hafa tíðir. Til þess að verða aftur hrein eftir að hafa verið svo ógeðsleg að eignast barn, þá skal hún færa presti sínum veturgamla sauðkind sem brennifórn og unga dúfu eða turtildúfu í syndafórn. Hafið ekki áhyggjur samt, ef þú lendir í því að verða óhrein fyrir drottni eftir barnsburð og hefur ekki efni á sauðkind þá mátt þú koma með tvær ungar dúfur eða tvær turtildúfur í staðinn. Leiðinlegt að segja samt en konur, þið þurfið að fórna tveimur dúfum fyrir Guð mánaðarlega. Nota bene, hver sá sem snertir óhreina konu eða eitthvað sem hún hefur snert, verður einnig óhreinn. Einnig, ef maður stundar kynlíf með konu með tíðir, þá ber að drepa þau bæði.

#15 Að rækta tvenns konar korn í akri

GT: Þriðja Mósebók 19:19 „Þú skalt ekki sá tvenns konar korni í akur þinn.“

BANNAÐ!

#14 Að borða slátrað dýr eftir þriðja dag

GT: Þriðja Mósebók 19:5 „Þegar þið slátrið dýrir í lokasláturfórn handa Drottni … Þið skuluð neyta þess sama dag og þið slátrið því eða daginn eftir. Sé einhvers af því neytt á þriðja degi er það orðið óhreint … Sá sem neytir þess skal bera sekt sína því að hann hefur vanhelgað helgigjöf Drottins. Sá maður skal upprættur úr þjóð sinni.“

Tvö orð: Drama Queen.

#13 Að skilja við konuna sem þú giftist eftir að þú nauðgaðir henni

GT: Fimmta Mósebók 22:28-29 „Ef maður hittir óspjallaða stúlku sem ekki er föstnuð, tekur hana með valdi og leggst með henni og komið er að þeim skal maðurinn, sem lagðist með stúlkunni, greiða föður hennar fimmtíu sikla silfurs. Hún skal verða eiginkona hans sakir þess að hann spjallaði hana og honum skal ekki heimilt að skilja við hana alla ævi sína.“

NT: Markúsarguðspjallið 10:8-9 „Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem guð hefur tengt saman má maður eigi sundur skilja.“

Eins og allir vita, þá eiga nauðgarar að giftast fórnarlömbum sínum. Færri vita kannski að þeir mega alls ekki skilja við fórnarlambið/eiginkonuna. Reyndar er bannað að skilja yfir höfuð: „Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem guð hefur tengt saman má maður eigi sundur skilja.“

#12 Að vera í fötum sem gerð eru úr tvenns konar bandi

GT: Þriðja Mósebók 19:19 „Þú skalt ekki bera klæði sem ofin eru úr tvenns konar bandi.“

Ertu í bol sem er 60% bómull og 40% eitthvað annað? Jebb, þú ert syndugur og að öllum líkindum á leið til helvítis. Oj, þér!

#11 Að borða ávexti af tré fyrstu fjögur árin…

GT: Þriðja Mósebók 19:23-25 „Þegar þið komið inn í landið og gróðursetjið alls konar tré, sem bera æta ávexti, skuluð þið líta á ávextina sem forhúð þeirra. Í þrjú ár skuluð þið líta á þau sem óumskorin og ekki neyta ávaxta þeirra. 24Á fjórða ári skal helga Drottni alla ávexti þeirra á gleðihátíð. En á fimmta ári megið þið neyta ávaxta þeirra og hirða það sem trén gefa af sér. Ég er Drottinn.“

Ef þú plantar niður tré sem gefur ávexti, þá á að líta á ávextina fyrstu þrjú árin sem forhúð þeirra. Tréin eru óumskorin (…) þessi fyrstu þrjár ár. Fjórða árið á Guð alla ávextina en á fimmta ári máttu borða ávextina loksins! Mundu þetta ef þú gróðursetur rifsberjarunna eða eitthvað álíka ef þú vilt komast til himna.

#10 Að borða eitthvað sem blóð er í

GT: Þriðja Mósebók 19:26 „Þið skuluð ekki neyta neins sem blóð er í.“

Svo þér finnst nautasteikin þín best rare? Syndari!

#9 Miðlar og spámennska

GT: Þriðja Mósebók 19:26 „Þið skuluð hvorki stunda spásagnir eftir fyrirboðum né galdur.“

GT: Þriðja Mósebók 19:31 „Snúið ykkur hvorki til miðla né þeirra sem flytja spámæli frá öndum. Ef þið leitið til þeirra óhreinkist þið. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“

GT: Þriðja Mósebók 20:6 Ég beini augliti mínu gegn hverjum þeim manni sem snýr sér til miðla og þeirra sem flytja spámæli frá öndum og ég mun uppræta hann úr þjóð sinni.“

GT: Þriðja Mósebók 20:27 „Þegar andi einhvers dauðs manns eða spásagnarandi er í einhverjum, hvort heldur það er karl eða kona, skulu þau tekin af lífi. Þau skulu grýtt; blóðsök þeirra skal koma yfir þau.“ 

Þið verðið óhrein við það að fara til miðla eða spámanna. Einnig er algjört bann að vera miðill eða spámaður. Ekki bara það heldur mun Guð persónulega uppræta ykkur úr þjóð ykkar ef þið gerist þess sek. Ef Guð hefur ekki tíma og andi fer í einhvern, þá skal grýta þann einstakling til dauða.

#8 Að krúnuraka höfuð sitt

GT: Þriðja Mósebók 19:27  „Þið skuluð ekki krúnuraka höfuð ykkar. “

Guði finnst það ljótt.

#7 Tattoo

GT: Þriðja Mósebók 19:27  „Þið skuluð hvorki rista sár í húð ykkar vegna látins manns né láta húðflúra tákn á ykkur. Ég er Drottinn.“

Alveg bannað að húðflúra tákn á ykkur. Þess vegna elska ég að googla “jesus tattoo.”

#6 Að vera óumskorin

GT: Fyrsta Mósebók 17:14 „Óumskorin karlmaður, sem hefur ekki látið umskerast á holdi forhúðar sinnar, hefur rofið sáttmála minn og skal upprættur verða úr þjóð sinni.“

#5 Að vera þrjóskt barn

GT: Önnur Mósebók 21:17 „Sá sem bölvar föður sínum eða móður skal líflátinn.“

GT: Þriðja Mósebók 20:9 „Sérhver, sem bölvar föður sínum og móður, skal líflátinn. Vegna þess að hann hefur bölvað föður sínum og móður skal blóðsök hans koma yfir hann.“

GT: Fimmta Mósebók 21:18-21 „Eigi maður þrjóskan son og ódælan sem hvorki vill hlýða föður sínum né móður og hlýðnast þeim ekki heldur þótt þau hirti hann, skulu faðir hans og móðir taka hann og færa hann fyrir öldunga borgarinnar á þingstaðinn í borgarhliðinu. Þá skulu þau segja við öldunga borgarinnar: „Þessi sonur okkar er þrjóskur og ódæll og hlýðir ekki áminningum okkar. Hann er bæði ónytjungur og svallari.“ Þá skulu allir karlmenn í borginni grýta hann til bana.“

Ef þú bölvar foreldri þá skalt þú verða líflátinn. Ef sonur manns er þrjóskur og vill ekki hlýða þá ber að grýta hann til dauða. Einfalt mál! Ótrúlegt hvað fáir fara eftir þessu…

#4 Að vinna á Hvíldardegi

GT: Önnur Mósebók 31:13-15 Þið skuluð halda hvíldardaga mína því að hvíldardagurinn er tákn milli mín og ykkar frá kyni til kyns svo að þið játið að ég er Drottinn sá sem helgar ykkur. Haldið hvíldardaginn því að hann skal vera ykkur heilagur. Hver sem vanhelgar hann skal líflátinn því að hver sem vinnur þá einhver dagleg störf skal upprættur úr þjóð sinni. Sex daga skaltu vinna en sjöundi dagurinn er algjör hvíldardagur, helgaður Drottni. Sérhver, sem vinnur verk á hvíldardegi, skal líflátinn.“

GT: Fjórða Mósebók 15:35-36 „Þá sagði Drottinn við Móse: „Þennan mann verður að lífláta, allur söfnuðurinn skal grýta hann utan við herbúðirnar.“ Allur söfnuðurinn fór þá með hann út fyrir herbúðirnar og grýtti hann til bana eins og Drottinn hafði boðið Móse.“

Þú mátt vinna í sex daga en á sjöunda degi skaltu hvíla þig. Ef þú vinnur á hvíldardeginum eða sinnir daglegum störfum, þá á að drepa þig. Guð mælir með að við grýtum þetta fólk til dauða.

#3 Að vera ekki hrein mey við giftingu

GT: Fimmta Mósebók 22:20-21 „En reynist ásökunin rétt og engin sönnunargögn fyrir meydómi stúlkunnar finnast 21skal færa stúlkuna að húsdyrum föður hennar. Þá skulu íbúar heimaborgar hennar grýta hana í hel því að hún hefur framið svívirðingu í Ísrael með því að hórast í föðurgarði. Þú skalt uppræta hið illa þín á meðal.“

Ef það kemur í ljós eftir giftingu að stúlkan er ekki hrein mey þá skulu íbúar heimaborgar hennar grýta hana til dauða.

#2 Að vera nauðgað innan bæjarmarka

GT: Fimmta Mósebók 22:23-24 „Ef óspjölluð mey er föstnuð manni og einhver annar hittir hana í borginni og leggst með henni skuluð þið færa þau bæði að borgarhliðinu og grýta þau í hel, stúlkuna af því að hún hrópaði ekki á hjálp í borginni og manninn af því að hann spjallaði konu náunga síns. Þú skalt eyða hinu illa þín á meðal.“

Ef óspjallaðri mey er nauðgað í borginni þá er það hneysa og ber að lífláta bæði nauðgarann og fórnarlambinu. Ef henni er nauðgað út í sveit þá hún lifa. Því… meina… hún var í borginni…  ef hún hefði í alvöru öskrað á hjálp þá hefði pottþétt einhver heyrt í henni… er það ekki? Júúú, segjum það bara.

#1 Samkynhneigð karla

GT: Þriðja Mósebók 18:22 „Þú mátt ekki liggja með karlmanni eins og legið er með konu, það er viðurstyggð.“

GT: Þriðja Mósebók 20:13 „Leggist karlmaður með karlmanni eins og þegar lagst er með konu fremja þeir báðir viðurstyggilegt athæfi. Þeir skulu báðir líflátnir. Blóðsök þeirra skal koma yfir þá.“  

Guð telur samkynhneigð vera viðurstyggð. Hann hatar líka að fólk dýrkar aðra en hann. Þess vegna elska ég að dýrka samkynhneigða menn eins og Stephen Fry, Freddie Mercury og aðra awesome gay gaura. Það ber að nefna að Guð er ekki bara á móti samkynhneigðum, hann bókstaflega hatar fólk fyrir að vera það sem hann skapaði. Guð segir orðrétt: „Leggist karlmaður með karlmanni eins og þegar lagst er með konu fremja þeir báðir viðurstyggilegt athæfi. Þeir skulu báðir líflátnir.“ Nota bene, það er ekkert talað um samkynhneigð kvenna. Spes.

Eitthvað hefur farið framhjá mér varðandi lesbíur í Bréfi Páls til Rómverja 10:26-27, en þar stendur: „Þess vegna hefur Guð ofurselt þá svívirðilegum girndum. Bæði hafa konur breytt eðlilegum mökum í óeðlileg, og eins hafa líka karlar hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn frömdu skömm með karlmönnum og tóku út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar.“ Þakka Svavari Kjarrval fyrir ábendinguna.

Finnst þér rétt að grýta börn til dauða fyrir að hlýða ekki foreldrum sínum? Finnst þér að fórnarlömb nauðgana eigi að þurfa giftast nauðgurum sínum? Finnst þér það vera rangt að vera í bol sem er búin til úr fleiri en einni tegund efnis? Við getum ekki bara valið og hafnað því sem hentar hverju sinni. Öll þessi boð og bönn fylgjast að, flest eru úr sama part úr Biblíunni. Aðeins hræsnari leyfir sér að halda því fram að hann geti sagt að þessi setning sé í raun Guðs orð og hin (sem hentar honum ekki) sé bara barns síns tíma.

Stefán Birgir Stefáns

Hægt er að fylgjast með sbs.is á Facebook og ég mæli einnig með að þú fjárfestir í bókinni minni, Útburður.