sbs.is

LlB – Nauðgun og Biblían
Einstaka sinnum gerist það að starfsfólk trúfélaga blandist inn í umræðu um nauðgunarmál. Þetta er auðvitað sjaldgæft en það gerist samt að nauðgarar fái vernd, vinnu eða hreinlega viðurkenningar frá kirkjum. Maður spyr sig kannski: „Hvað ætli Guð mundi segja um þetta ef hann gæti haft samskipti við mannfólkið á einhvern hátt?“ Því miður, þá er búið að vera mikið sambandsleysi við himnaríki síðustu 2000 árin, plús mínus, svo við verðum að líta í Biblíuna til að fá svör. Hvað segir bókin góða um nauðganir? Athugum það…

Nota bene, það er ágætt að taka það fram hér og nú það trúa ekki allir kristnir á að Biblían sé orð guðs. Sumir trúa bara vissum köflum, sumir trúa bara öðru testamentinu og aðrir trúa bara því sem hentar.

Ef óspjölluð mey er föstnuð manni og einhver annar hittir hana í borginni og leggst með henni skuluð þið færa þau bæði að borgarhliðinu og grýta þau í hel, stúlkuna af því að hún hrópaði ekki á hjálp í borginni og manninn af því að hann spjallaði konu náunga síns.

5. Mósebók, GT, 22:23-24

Þarna er í raun bara að taka af allan vafa. Það skiptir ekki máli hvort konunni var nauðgað eða ekki, ef atvikið gerðist í borginni þá er hún er réttdræp. Þarna er í raun gert ráð fyrir að ef stelpan hefði hrópað á hjálp, þá hefði einhver heyrt og komið til bjargar. Ef enginn kom til bjargar, þá getur stelpan bara sjálfri sér um kennt. Líka, ef nauðgarinn hélt fyrir munn hennar eða kom í veg fyrir að hún gæti öskrað, þá … já, hún getur bara sjálfri sér um kennt. Hún hefur líka pottþétt verið að klæðast druslulega, sýnt of mikið af kálfunum.

Þarna er reyndar ekki tekið fram að um nauðgun sé að ræða, bara „því hún hrópaði ekki á hjálp…“ skulum sjá hvort… já, næsta setning.

Ef maðurinn hittir föstnuðu stúlkuna úti á víðavangi, tekur hana með valdi og leggst með henni skal maðurinn, sem lagðist með henni, einn deyja. Þú skalt ekki gera stúlkunni neitt, hún hefur ekkert gert sem varðar dauðasök. Þetta mál er áþekkt því að maður ráðist á annan og myrði hann. Þar sem hann hitti stúlkuna úti á víðavangi kann fastnaða stúlkan að hafa hrópað á hjálp en enginn verið þar til að hjálpa henni.

5. Mósebók, GT: 22:25-27

Stúlkan má sumsé lifa af ef það er alveg á hreinu að enginn gæti hafa bjargað henni. Góður díll. En það er alltaf að tala um stelpu sem er föstnuð, hvað um hinar?

Ef maður hittir óspjallaða stúlku sem ekki er föstnuð, tekur hana með valdi og leggst með henni og komið er að þeim skal maðurinn, sem lagðist með stúlkunni, greiða föður hennar fimmtíu sikla silfurs. Hún skal verða eiginkona hans sakir þess að hann spjallaði hana og honum skal ekki heimilt að skilja við hana alla ævi sína.

5. Mósebók, GT: 22:28-29

Æji, nauðgarinn þarf að giftast fórnarlambinu sínu. Greyið nauðgarinn að fá svona slæma refsingu en heppna stelpa að fá loksins að vera föstnuð með svona líka efnilegum eiginmanni. Auka plús fyrir pabbann, losnar við stelpuna og fær greitt fyrir um leið!

Þá vitum við það!

Varðandi það að karlmönnum sé nauðgað, ég veit ekki til þess að það séu neinar reglur í Biblíunni hvernig á að taka á því. Hinsvegar, í 1. Mósebók, eftir eyðingu Sódómu og Gómorru, þá tóku dætur Lots (frændi Abrahams) sér til og gerðu hann fullan tvö kvöld í röð til þess að geta nauðgað honum. Þær nauðguðu honum báðar á sitthvoru kvöldinu til þess að verða ófrískar. Ég veit ekki til þess að Guð eða menn hafi refsað þeim fyrir nauðganirnar eða sifjaspellið. Einkennilegt. Hægt er að lesa um þetta nánar í 1. Mósebók, GT: 19:30-38.

Ágætt að nefna aftur, fullt af kristnum taka ekki mark á Gamla Testamenntinu, hvað þá bókum Móses. Í þeim eru mjög ómerkilegir hlutir eins og sköpun heimsins, Adam og Eva, Nóaflóðið, Boðorðin 10 og annað sem kemur nútíma kristni ekkert við.

„Gaf Móse yður ekki lögmálið? Samt heldur enginn yðar lögmálið.“

Jóhannesarguðspjall, NT: 7:19.

Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla.“

Matteusarguðspjall, NT: 5:17.

Jesús H. Kristur

-Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook.

http://www.youtube.com/watch?v=QsG5V-o6uxY

Páskarnir 1997, guðlast grínista og ritskoðun kristna
Um páskana 1997 gerðust tveir merkilegir atburðir. Kvikmynd var tekin úr sýningu hjá RÚV fyrir að innihalda guðlast og reynt var að kæra grínista, einnig fyrir guðlast. Kvikmyndin, sem átti að vera til sýningar laugardagskvöldið 5. Apríl, var „The Last Temptation of Christ“ eftir Martin Scorsese með Willem Dafoe sem Jesús Kristur. Grínistarnir voru Spaugstofumennirnir, en þeir eru þekktir fyrir beittan og heimspekilegan húmor.

Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem ritskoðun átti sér stað og kvikmynd Scorseses var tekin af dagskrá, Stöð 2 ætlaði að sýna hana 1991 en fékk yfir sig flóð af mótmælum, meðal annars frá þáverandi biskup, Ólafi Skúlasyni.

Það er ágætt að rifja upp þessar blaðaúrklippur hér fyrir neðan, aðallega til að sjá hversu mikil þróun hefur verið hér á landi síðustu tvo áratugi í frelsi. Dytti einhverjum embættismanni í hug í dag að leggja í opinbera rannsókn vegna þess að gert var grín af yfirnáttúrulegum verum, gömlum sögum eða hugmyndafræði? Okay, reyndar Ögmundur en hann er ekki tekinn með.

Dagskráin fyrir þetta kvöld.

16 ár síðan. Bara 16 ár.

Í þættinum voru brandarar eins og “Blindur fær Sýn,” þ.e. sjónarpsstöðina Sýn ekki sjón. Honum til varnar, þá var Ólafur Skúlason mjög viðkvæmur maður sem gerði aldrei flugu mein.

Nei, bíddu… ó.

Tíma og pening ríkislögreglu var eytt í það að athuga hvort að tjáningarfrelsi ætti við Spaugstofuna.

Auðvitað var þetta allt ákveðið í einhverjum sveittum sundpotti þar sem að allir töluðu eins og Jón Gnarr þegar hann er að leika gamlan, pirraðan gamlan mann sem er ekki í neinu sambandi við raunveruleikann.

Frelsi 1, Ritskoðun 0.

-Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook.

Topp 15: 90s Snorra í Betel blaðaúrklippur
Fyrr á árinu komu þau gleðitíðindi frá hinum Kristna þjóðarflokk að flokkurinn myndi bjóða sig fram í næstu kosningum og að enginn annar en sjálfur Snorri í Betel væri kominn í flokkinn! Gleðin hefur án efa verið mikil í mörgum hjörtum sem slá í öðrum takti en hjörtu flestra Íslendinga.

Það er óþarfi að kynna hver Snorri í Betel er, maðurinn er reglulega í fréttum. Flestir hafa sínar skoðanir á manninum, eða betur sagt þá hugmyndafræði sem hann predikar. Honum er sjaldan vel tekið, enda er hann meðal þeirra fáu sem trúir að biblían sé orð guðs sem ber að fara eftir. Fáir taka Snorra alvarlega, trúlausir gera gys á meðan að margir kristnir benda á að þeir trúi sko ekki þeim pörtum af biblíunni sem Snorri vísar í hverju sinni. En það er í raun eina sem Snorri gerir, hann vísar í biblíuna.

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti (og tók síðan tilbaka) ályktun um að lög ættu að taka mið af kristnum gildum, þá skapaði það ofsaviðbrögð. Ástæðan er einföld, “kristin gildi,” fyrir flesta, er einfaldlega það sem hentar hverju sinni. Það er algjörlega marklaus stimpill sem hægt er að nýta sér eftir hentisemi. Snorri boðar kristin gildi, beint frá biblíunni, en ég efast um að margir Íslendingar vilja að að lög taki mið af þessum gildum…

[Allar úrklippur eru skjáskot frá vefsíðunni timarit.is.]

15. Samútgáfan stefnir Betel fyrir meiðyrði

Ég talaði um Samútgáfuna og sagði að hún gefi út Bleikt og blátt, sem er klámrit, og Hulinn heim, sem fjallar um svartar messur og djöfladýrkun. Ég talaði um að þetta væri næringin sem börnin fengju. Ef foreldrarnir sýna þeim ekki neina biblíufræðslu eða kristilegan áhuga þá tekur þetta náttúrulega við. Þá segi ég: það er bölvun sem hvílir yfir Sam-útgáfunni…

Samútgáfan hætti síðar við stefnuna, en þar sem ég var barn á þessum tíma þá get ég staðfest að þó að ég hafi ekki fengið neina biblíufræðslu (fyrir utan kristinfræði í skólanum), þá tóku blöðin “Bleikt og blátt” og “Hulinn heimur” ekki við af neinu hjá mér.

14. Útsendarar djöfulsins lenda á Snæfellsjökli

Höfðingi þessara geimvera heitir nú bara djöfullinn og satan.

Þessi úrklippa varð til þess að ég gerði þessa grein. Í fyrra gaf ég út bók, Útburður, sem var að hluta til tengd þeim atburði sem átti að gerast á Snæfellsjökli þann 5. nóvember 1993 (hann gerðist ekki). Við heimildarvinnu rakst ég á þetta og vistaði með öðru, svo fór ég að skoða gögnin aftur fyrir skömmu og hugsaði “Djöfull er ábyggilega hægt að finna margar einkennilega fréttabúta um þennan mann.”

13. Djöfullinn sjálfur er upphaf pornósins

Það sem gerðist þarna í Rómarveldi er nákvæmlega það sama og er að gerast í dag á Vesturlöndum; mikil siðferðisleg hnignun er undanfari hruns ríkisins. Við erum að horfa á þetta gerast núna tvöþúsund árum síðar: hrun vestrænnar menningar vofir yfir okkur.

Því miður fann ég ekki þessar erótísku myndir eftir Sigurfinn Sigurfinnson þrátt fyrir mikla leit, þannig að ég get í raun ekki dæmt um hve hræðilegar þær voru, hinsvegar get ég dæmt um hve yndisleg samsetning þessi fyrirsögn og þessi hressa mynd af Snorra er. Niðurstaða, vel yndisleg.

12. Nektardans á Íslandi

Það er aðeins einn sem á að striplast nakinn fyrir augum okkar, Satan, sem afhjúpaður faðir lyginnar og upphaf spillingarinnar.

Besta. Quote. Ever.

11. Eigum ekki að leika guð

Blessunarlega held ég að við höfum alveg sloppið við það í fornöldum að hafa svona aðgerðir og það stendur ekkert um kynskipti í biblíunni, mér vitanlega.

Já… veistu, það er alveg rétt hjá Snorra að nútíma læknavísindi voru ekki til á fornöldum. Aðrir hlutir sem ekkert stendur um í biblíunni: hjartaígræðslur, GSM símar, tölvur, mótorhjól og hipsterar, svo eitthvað sé nefnt.

10. Finnst þér í lagi að þjónandi prestar séu samkynhneigðir?

Nei, það finnst mér ekki í lagi – hvorki prestar né aðrir.

Meikar sens, biblían er frekar skýr á því að samkynhneigð sé af hinu illa.

9. Samkynhneigðir megi stjúpættleiða börn

Börnum, framtíð þjóðarinnar, ber að fá það besta sem hvert þjóðfélag hefur upp á að bjóða. … Staðfest samvist er ekki uppeldisvænn vettvangur fyrir barn til að læra eðlilega hlutverkaskiptingu milli karla og kvenna. Eða vildu þingmenn sjálfir afhenda börn sín í lífsmáta þeirra sem búa í staðfestri samvist?

Snorri mun seint teljast til jafnréttissinna.

8. Guð hefur andstyggð á kynvillu

Mannréttindin aukast ekki við að brjóta tilskipun Guðs almáttugan.

Það er einfaldlega rangt, ef boðskapur stangast á við mannréttindi þá aukast mannréttindi við það að fara gegn boðskapnum. Barn gæti komist að þeirri niðustöðu.

7. Ég myndi krjúpa á kné og spyrja almættið

Ég hef ekki heyrt þetta fyrr og ég finn það ekki hjá mér sem köllun guðs. En eftil mín yrði leitað um að gefa kost á mér myndi ég krjúpa á kné og spyrja almættið.

Ætli Snorri hefði synjað Icesave?

6. Kraftaverkum fjölgar

Jesús Kristur er auðvitað engum líkur.

Ekkert smá kraftaverk að einhver skrifaði að Jesú hafi lesið og að einhver annar hafi skrifað að hann væri ólæs. Er alveg seldur, hvert fer ég til að frelsast?

5. Löglegt lögbrot!

Einstæðar mæður komast fyrr að með börn sín á leikskóla og barnaheimili en gifta konan.

Helvítis einstæðar mæður alltaf hreint, hafa það svo gott. Það væri sko ekki þannig ef guðslög væru við líðinn!

4 Aðför að kristinni trú

Auk þess minnir hann á að samþykki laga fylgi siðferðileg ábyrgð og þar sem að samkynhneigðir séu ‘stærsti hópur HIV-smitaðra’ sé það ‘sjálfgefið að þjóðfélagið sem samþykkir kynvillu verði að greiða háar fjárhæðir til að viðhalda lífi og heilsu hjá fólki sem lifir í mikilli smithættu við banvæna sjúkdóma.

Manngæskan hreinlega lekur af þessum manni.

3. Brenna „Ókristilegar“ bækur og geisladiska

Mikið var af djöfla- og dauðarokki og margir textar hvöttu siðleysis, s.s. kynvillu og tvíkynja samskipti. Þegar unglingarnir áttuðu sig á því að textarnir væru í algjörri andstöðu við Biblíunna ga´tu þeir ekki lengur notið tónlistarinnar. Þeir fengu svo hugmyndina að því að brenna diskana eftir að hafa lesið…

Ég hef skrifað grein um þessa brennu, og í raun það besta sem hægt er að segja um hana sagði Sverrir Stormsker á sínum tíma, en hann var hissa yfir því að Mein Kampf hafi verið brennd, „því maður hefði haldið að hugmyndin að brennunni væri einmitt sótt þangað.“

2b. Hvernig líst þér á lagafrumvarp Alþingis er varðar staðfesta sambúð samkynhneigðra?

Samkynhneigð er í raun og veru það þegar fólk hefur ekki tök á lífinu og tilfinningum sínum. Þetta er óregla í tilfinningum, miklu fremur skyld fíkn en mannréttindum.

Mig grunar að Snorri viti jafn mikið um mannréttindi og sálfræði eins og nýfætt barn veit um stjarneðlisfræði.

2a. Snorri í Betel flaggar í hálfa

Ég flaggaði íslenska fánanum í hálfa stöng og tilkynnti þannig að þetta væri sorgardagur í sögu Íslands … Ástæðan fyrir þessu var þessi hommavitleysa. Frá Guðsorðinu séð er þetta hin mesta ósvinna.

Sjáiði hvað við erum heppin að lagasetning á Íslandi taki ekki mið af kristnum gildum?

1. Næst munu barnaníðingar vilja giftast börnum

Hvað gerist þá með menn sem vilja búa með einhverjum öðrum, til dæmis börnum?

Ég held að þú þurfir að vera mjög ill mannvera til þess að bera saman ást fullorðna einstaklinga saman við barnaníðslu. Öfga kristnir eiga til að gera þetta, sem annað dæmi reyna margir þeirra að líkja þróunarkenningunni við Nasisma. Fyrir mér hefur svona tal sömu afleiðingar og þegar kristnir tala um að ef einstaklingur trúir ekki á refsifullan guð, þá er ekkert sem hindrar hann frá því að myrða. Það sem þeir eru í raun að segja er að það eina sem hindrar að siðblinda þeirra taki völdin, sé ótti við guð.

Þegar fólk eins og Snorri líkir samkynhneigðum við barnaníðinga, þá er hann bara að auglýsa eigin heimsku og hatur.

Það er enn ekki komið hvaða listabókstaf Snorri og Kristnu stjórnmálasamtökin munu hafa í kosningunum í vor, en fyrir þá sem ætla að setja x við stafinn… megi Guð hjálpa þér.

Fyrir þá sem þurfa hressingu eftir þessa lesningu, hér er ELO!

http://www.youtube.com/watch?v=Bzehb_yeZtU

-Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook.

Leikmaður les Biblíuna – Páskadagarnir
Nú eru páskar að ganga í garð og fólk er byrjað að undirbúa það að spyrja: „Af hverju höldum við aftur upp á þennan dag?“ Ef þú ert ekki viss, þá er hér smá listi sem ég tók til…

Pálmasunnudagur

Á pálmasunnudegi kom Jesús til Jerúsalem og þar tók fólk á móti honum eins og um konung væri að ræða, þ.e. með því að veifa pálmagreinum. Íslendingar halda upp á daginn oft með því að horfa á kvikmyndina „Bíódagar,“ en í henni lék Pálmi Gestsson hlutverk creepy flutningabílstjóra.

Skírdagur

Á skírdegi þvoði Jesús fætur lærisveina sína og borðaði síðan síðustu kvöldmáltíðina. Síðasta kvöldmáltíðin fékk mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar hún var veigamikill partur af mynd með Tom Hanks í aðahlutverki, þannig að þú manst ábyggilega eftir henni þaðan. Á Íslandi er varla hægt að komast ferða sinna á Skírdegi, því að kristnir eru svo ólmir í að þrífa fæturna á þeim sem minna mega sín, enda er þekkt að kristnir eru oftast meira kristnir í verki fremur en orði.

Frá Wikipediu: Eftir siðaskiptin hefur frekar verið litið á skírdag sem lok föstu og haldið upp á hann með mat. Heimildir eru um það frá 18. og 19. öld að hnausþykkur rauðseyddur mjólkurgrautur hafi víða verið skammtaður á skírdagsmorgun áður en menn héldu til kirkju. En slíkur grautur þótti mikið lostæti hér áður fyrr á Íslandi, og er hans ósjaldan getið sem sérstaks hátíðaréttar. Grauturinn þótti þó auka mönnum svo vind, að sagt er að ekki hafi verið þefgott í kirkjunum á skírdag.

Hvers eiga kristnir að gjalda?

Föstudagurinn langi

Í gamla daga þá mátti fólk ekki gera neitt á þessum síðasta föstudegi fyrir páska, og því varð dagurinn mjög leiðinlegur og langur, og þaðan fékk hann nafnið. Myndin „Passion of the Christ“ gerðist aðallega á þessum degi, en einnig hluti af heimildarsöngleiknum „Jesus Christ Superstar.“

Sagan segir að valdamikill konungur hafi ákveðið að allir þegnar hans væru sekir um ímyndaða glæpi og því vildi hann refsa þegnunum. Konungurinn ákvað að senda son sinn meðal þegnanna, svo þeir gætu pyntað hann og drepið á hrottafenginn hátt. Með því var konungurinn að láta son sinn deyja fyrir þá glæpi sem hann ákvað að fólkið hafði framið og var því að vera rosalega góður konungur.

Sumir vilja meina að sonurinn var í raun konungurinn sjálfur í dulargervi og var því í raun ekki drepinn því hann var ódauðlegur. Þannig að hann tapaði í raun engu heldur græddi hann „píslarvotta“ stimpilinn, sem þykir einna verðmætastur af öllum stimplum.

Þetta atferli, þ.e. að búa til ímyndaða sekt og láta sem þú sért að taka við refsingunni fyrir hönd annara er oft kallað í daglegu máli: „Sjáðu hvað þú lést mig gera!“

Og með „valdamikill konungur,“ meina ég „Guð“ og með „sekir um ímyndaða glæpi,“ meina ég „fullir af ímynduðum syndum.“

Páskadagur

Á páskadegi  borða Íslendingar nammi til þess að fagna því að Jesús lifði það af að vera krossfestur.

Annar í Páskum

Á þessum degi fagna Íslendingar því að við setjum „Annar í“ við allt til þess að fá auka frídag. Stór hluti af deginum fer hjá mörgum í hugsun og almennar vangaveltur um hvað eigi að gera við páskaungana af páskaeggjunum. Eigum við að henda þeim bara? En þeir eru svo sætir og þessi er með litla unga líka! Kjútí.

Uppstigningardagur

Uppstigningardagur er sá dagur sem helmingur þjóðar sameinast við að útskýra fyrir hinum helmingi þjóðarinnar að þetta heitir uppSTIGNingardagur ekki uppSTILLingardagur. Börn stilla oft upp hlutum í tilefni dagsins. Einnig, þá reis Jesús upp til himna á þessum degi, 40 dögum eftir að hann að fór úr gröfinni sinni. Í himnaríki tók hann sæti við hlið Guðs, eða ef hann er Guð, settist í hásætið sitt.

Margir vilja meina að Jesú komi aftur til jarðar þegar endalokin eru nær og vonast hátt í 80% allra Kristna að hann muni líta út eins og hvíti, myndarlegi gaurinn með skeggið sem fólk sér alltaf fyrir sér, fremur en eins og einhver frá miðausturlöndum, eins og hann hefur litið út á sínum tíma.

Hvítasunnudagur

Oft þekktur sem „já, var búin að gleyma þessum degi.“ Á hvítasunnudegi kom heilagur andi yfir lærisveina Jesús. Ekki eins og þegar illur andi kemur yfir fólk eins og í myndinni “The Exorcist.”

Annar í hvítasunnu

Íslendingar fagna „Annar í“ reglunni en um leið blóta því að það eru átta mánuðir í næstu alvöru frídaga.

Og þá eruði með það á hreinu.

Kjútí!

-Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook.

Ögmundur og ritskoðun internetsins
Fyrir hálfum mánuði kom ég heim frá Bandaríkjunum eftir að hafa verið þar í viku. Þar kíkti ég stundum á fréttir í gegnum þráðlausanetið á hótelinu á símanum mínum og ég get svo svarið það, í næstum hvert einasta skipti sem ég kíkti var frétt með fyrirsögn sem innihélt orðin: „Ögmundur“ og „Banna.“ Það er skiljanlegt. Vinstri Grænir munu líklegast ekki komast aftur í ríkisstjórn næstu áratugina—eða það vona ég—og Ögmundur þarf að fá fróun fyrir forræðishyggjunni sem slær í hjarta hans áður en hann missir völd fyrir fullt og allt.

Stærsta málið er auðvitað að hann vill banna klám. Til þess þarf að hefja ritskoðun á internetinu og það ætti að vekja upp mikla hræðslu og óhug í hugum okkar Íslendinga. Ef marka má fréttir, þá er bara verið að reyna að finna tæknilegu hliðarnar til þess að hefja þessa ritskoðun og setja hana í gang fyrir næstu kosningar.

Samkvæmt Ögmundi, þá er þetta ekki ritskoðun. Það eru tvær ástæður sem geta verið til þess að hann segi að þetta sé ekki ritskoðun. Í fyrsta lagi þá getur verið að Ögmundur viti ekki hvað orðið ritskoðun þýðir.

Samkvæmt snara.is, þá merkir orðið: „það að skoða rit fyrir prentun til að skera úr því hvort prenta megi.“

Í nútímamáli, varðandi internetið, þá getum við snúið þessu yfir í: „það að skoða vefsíðu fyrir niðurhal til að skera úr hvort niðurhal megi.“

Það er bókstaflega það sem Ögmundur vill gera.

Í öðru lagi, þá getur verið að Ögmundur telji Íslendinga vera fáfróða, að þeir trúi því blint að ritskoðun sé ekki ritskoðun bara því hann segir það.

Ég þori ekki að fullyrða hvort er rétt, það skiptir ekki máli. Það sem máli skiptir er að við látum þetta ekki gerast.

Klám er núna í brennidepli og margir vilja kenna því um allt sem fer á mis í þjóðfélaginu. Persónulega, þá hef ég hef aldrei séð gögn sem sanna eða sýna fram á að klám láti fólk nauðga eða fremja aðra glæpi, eins og sumir virðast vilja halda fram. Ég hef hinsvegar lesið mér mikið til um ritskoðun í gegnum tíðina og tal Ögmundar og fylgjenda hans, endurtaka í raun næstum orðrétt þær réttlætingar sem fólk hefur alltaf notað. „Ég fíla ekki X þar af leiðandi er X hættulegur hlutur og þar af leiðandi á að ritskoða X.“

Þessi regla hefur verið notuð í hinum vestræna heimi aftur og aftur. Nokkrir hlutir sem hafa verið ritskoðaðir eða reynt hefur verið að ritskoða með þessari formúlu sem afsökun eru: Rapp og rokk tónlist, bæði undir lok síðustu aldar og um hana miðja. Hryllingsmyndir. Tölvuleikir. Grínistar (þeir voru stundum handteknir upp á sviði). Meira að segja myndasögur á sjötta áratugnum þóttu of grófar fyrir marga. Ég gæti líklegast haldið áfram ef ég mundi fara á Wikipedia. En þið skiljið hvert ég er að fara.

Allir þessir hlutir, hvort sem það er Batman myndasaga, Quake tölvuleikur eða Elvis lag, áttu það sameiginlegt í hugum þeirra sem vildu ritskoða, að þeir gerðu fólk að illmennum og ófreskjum. Annað sem þessir hlutir eiga sameiginlegt er að í dag, þegar við lítum til baka yfir söguna, þá hugsum við flest: „Voðalega var fólk miklir fasistar í gamla daga…“

Ah, gleymdi einu. Þriðja ástæðan fyrir því að Ögmundur vill ekki kalla ritskoðunina ritskoðun er líklegast sú rétta. Hann hefur lesið stjórnarskránna og, þá aðallega grein nr. 73, en í þar segir: Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.

Því miður, þá heldur textinn áfram: “Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna…” Þess vegna er afsökunin “Hugsiði um börnin!” alltaf notuð. Börn hafa ekkert að gera með að skoða klám en börn eiga heldur ekki að keyra bíla. Við bönnum samt ekki bíla.

Aðstoðarmaður Ögmundar heldur því fram að það sé mikil samstaða um þetta á Íslandi, ég hef ekki enn hitt neinn óbreyttan borgara sem er meðfylgjandi þessu. Hvar liggur þessi sterka samstaða? Er það á þingi? Langar helst að senda öllum þingmönnum tölvupóst og spyrja þá hreint út, gera smá óformlega könnun. Kannski maður gerir það bara.

Samkvæmt Ögmundi, þá er það að gera eign á klámi að refsiverðum hlut og loka á vefsíður, einungis að takmarka aðgengi.

Þetta mál snýst ekki um hvort að þú sért á móti klámi eða ekki. Þetta mál snýst um stóru spurninguna: þegar ríkisstjórn Íslands verður komin með leyfi og vopn til að loka fyrir þær vefsíður sem henta henni ekki; að hverju verður aðgengi takmarkað næst?

- Stefán Birgir Stefáns

Topp 5: Reglur varðandi þræla í Biblíunni
Nú á dögunum var bókstafstrúarmaðurinn Snorri „Oj, hommar!“ Óskarsson í Betel að opinbera það að hann vill á þing fyrir nýjan kristinn stjórnmálaflokk sem við erum öll án efa mjög spennt fyrir. Getur flokkur bókstafstrúarmanna fengið inn mann á Alþingi Íslendinga á 21. öld? Hver veit. Ég hef talað við marga sem eru á því að Ísland eigi að fara eftir Biblíunni í einu og öllu. Þessi flokkur gæti því fengið fullt af atkvæðum frá fólki sem annað hvort er sammála því sem stendur í Biblíunni eða (líklegra) hefur aldrei lesið Biblíuna og trúir bara því blint að allt sem í henni er rétt og gott. Það er því ágætt, hugsa ég, að dreifa boðskap Biblíunnar—þeim sem fæstir vilja að sé í dagsljósinu—vel næstu mánuði. Fyrr í vikunni skrifaði ég um þær reglur sem konur eiga að fara eftir samkvæmt Nýja Testamenntinu og nú, í tilefni þess að nýjasta mynd Quintin Tarantino, Django Unchained, er að koma í bíó, þá ætla ég að beina athygli ykkar að þrælahaldi samkvæmt Biblíunni.

#5 Að selja dóttur sína sem þræl

Þegar maður selur dóttur sína sem ambátt fær hún ekki að fara frjáls ferða sinna á sama hátt og þrælar. Hafi húsbóndi hennar ætlað hana sjálfum sér en hún ekki fallið honum í geð skal hann leyfa að hún verði keypt laus. Hann hefur ekki rétt til að selja hana útlendingum því að hann hefur svikið hana. Hafi hann ætlað hana syni sínum skal hún hafa sama rétt og dætur. Taki hann sér enn eina konu má hann ekki minnka við hana mat, klæðnað eða sambúð. Veiti hann henni ekki þetta þrennt getur hún farið burt án þess að lausnargjald verði greitt. Gamla Testamenntið: Önnur Mósebók, 21:7-11

Ég fíla hvernig þetta er orðað. “Þegar maður selur dóttur sína sem ambátt…” Eins og það sé í raun ekkert eðlilegra en að selja dóttur sína í þrælahald. Líklegast var það frekar algengt á þeim tíma sem Biblían var skrifuð og því var ákveðið að skrifa reglur um það. Nei, ég meina, Guð sagði Móses hvaða reglur ættu við þegar dætur voru seldar í þrælahald. Það mátti, samkvæmt Guði, því selja dóttur sína og einnig má einstaklingur kaupa konu til að hafa sem þræl. Hann má selja hana aftur ef hann nennir henni ekki lengur. Hann má líka hafa fleiri en eina konu, en má ekki minnka “mat, klæðnað eða sambúð.” Sambúð, í þessu tilfelli, er kynlíf. Sumsé, það er tekið fram að þrælaeigandinn má ekki hætt að nauðga kvenkyns þræl sínum, þó hann fái sér annan kvenkyns þræl eða konu. Lekkert.

#4 Að eiga þræl ævilangt

Þegar þú kaupir hebreskan þræl skal hann vinna sem þræll í sex ár. Á sjöunda ári skal hann halda burt sem frjáls maður án lausnargjalds. Hafi hann komið einhleypur skal hann fara einhleypur en hafi hann verið kvæntur skal kona hans fara með honum. Hafi húsbóndi hans fengið honum eiginkonu og hún alið honum syni eða dætur eru konan og börn hennar eign húsbónda hennar. Þrællinn skal fara einhleypur. Hafi nú þrællinn sagt: Mér þykir vænt um húsbónda minn, eiginkonu mína og börn og vil því ekki fá frelsi,skal húsbóndi hans leiða hann fram fyrir Guð og að dyrunum eða dyrastafnum. Síðan skal húsbóndi hans stinga al í gegnum eyra hans og hann verða þræll hans ævilangt. Gamla Testamenntið: Önnur Mósebók, 21:2-6

Sko, ef þú ert búin að eyða fullt af pening í að kaupa aðra manneskju og þú óttast að þrællinn muni fara eftir sjö ár sem frjáls maður eins og lög segja, þá er bara að láta hann eignast konu og börn. Meina, þú átt konuna og börnin þannig að ef hann vill fara, þá verður hann að skilja fjölskylduna sína eftir hjá skíthæl sem telur annað fólk vera eign hans! Geðveikt. Siðblint augljóslega en líka kristinlegur kærleikur.

#3 Að berja þrælinn sinn

Berji maður þræl sinn eða ambátt með staf svo að af hlýst bani skal þess hefnt. En lifi hann einn dag eða tvo skal þess ekki hefnt því að hann er eign mannsins.  Gamla Testamenntið: Önnur Mósebók, 21:20-21

Maður verður að muna þegar maður er að berja þrælinn sinn að hann verður að geta lifað í einn eða tvo daga eftir barsmíðina. Það er alveg bannað að berja þræl svo hann drepist strax en annars er í lagi að berja þrælinn til óbóta, því, common, þetta er bara eign. Ekki fer maður í fangelsi fyrir að brjóta sjónvarpið sitt?

#2 Að gera börn að þrælum

Þetta gildir um þá þræla og ambáttir sem þú eignast. Þið megið kaupa þræla og ambáttir af þjóðunum sem eru umhverfis ykkur. Þið megið einnig kaupa börn af þeim aðkomumönnum sem dveljast hjá ykkur undir vernd og eru fædd í landi ykkar. Þau verða eign ykkar og þið getið látið þau ganga í arf til barna ykkar. Þið getið ævinlega látið þau vinna sem þræla. En landa ykkar, Ísraelsmenn, skuluð þið ekki beita valdi. Gamla Testamenntið: Þriðja Mósebók, 25:44-46

Þið megið eiga þræla á meðan þeir eru svertingjar en ekki hvítir—nei, ég meina á meðan þeir eru útlendingar en ekki Ísraelsmenn. Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur yfir því að barnið sem þið keyptuð í þrælahald fái frelsi þegar þið farið til Himnaríkis, nei, alls ekki, þið getið látið það ganga í arf til barna ykkar svo barnið mun aldrei vera frjáls einstaklingur! Jejj.

#1 Jú, þrælahald er líka í lagi samkvæmt Nýja Testamenntinu

Allir þeir sem eru ánauðugir skulu sýna húsbændum sínum allan skyldugan heiður til þess að nafni Guðs og kenningunni verði ekki lastmælt. En þeir sem eiga trúaða húsbændur skulu ekki lítilsvirða þá vegna þess að þeir eru systkin í trúnni heldur þjóni þeir þeim því betur af því að þeir eru trúaðir og elskaðir og gera sér far um að koma vel fram við þá. Nýja Testamenntið: Fyrra Tímóteusarbréf, 6:1-2

Þrælar, hlýðið jarðneskum húsbændum ykkar með lotningu og ótta af einlægni hjartans, eins og það væri Kristur. Ekki með augnaþjónustu eins og þeir er mönnum vilja þóknast heldur eins og þjónar Krists er gera vilja Guðs af heilum huga. Þjónið eins og Drottinn ætti í hlut og ekki menn. Og þið, sem eigið þræla, breytið eins við þá. Hættið að ógna þeim. Þið vitið að þeir eiga í himnunum sama Drottin og hann fer ekki í manngreinarálit.

Nýja Testamenntið: Efesusbréfið, 6:5-9

Þrælar, verið í öllu hlýðnir jarðneskum húsbændum ykkar, ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur af einlægni hjartans, af lotningu fyrir Drottni. Nýja Testamenntið: Kólussubréfið,3:11

Þrælar, elskið eigendur ykkar. Ekki hugsa um þá sem þrælahaldara, hugsið um þá sem guði. Því þeir drottna yfir ykkur. Og þrælaeigendur, þið megið eiga þræla, auðvitað, en ekki vera of vondir við þá. Pant láta presta kenna framtíðar börnunum mínum þennan boðskap strax í leikskóla.

Eru bókstafstrúarmenn almennt meðfylgjandi þrælahaldi? Líklegast ekki. Nær allir sem ég veit um sem kalla sig bókstafstrúarmenn taka bara það sem hentar úr Biblíunni hverju sinni og nota það sem afsökun fyrir skoðanir sínar. Besta dæmið um það er samkynhneigð. Hommar eru slæmir því að það stendur í Nýja Testamenntinu. Sama fólk mundi líklegast ekki samþykkja að þrælar eigi að líta á eigendur sínar sem guði, og trúlega mundu þau bera fyrir sig verstu afsökunina: “Sko, þetta er ekki sannleikurinn því Jesús talaði ekki um það!” Vitiði hvað Jesú talaði heldur ekki um? Samkynhneigð.

-Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook.

Topp 5: Reglur fyrir konur í Nýja Testamenntinu
Í gegnum tíðina hef ég skrifað nokkuð margar greinar um kristna trú og oftar en ekki um Biblíuna sjálfa. Greinin mín “Topp 20: Hlutir sem eru bannaðir í Biblíunni” er líklega það vinsælasta sem ég hef skrifað síðan Leoncie ætlaði að kæra mig fyrir það að vera formaður KKK á Íslandi fyrir næstum áratug (ég er ekki, og hef aldrei verið, formaður KKK á Íslandi) og ég er frekar stoltur af “Topp 5: Ástæður fyrir því að ég er ekki trúaður.” Fólk virðist hafa gaman af því að lesa þessar greinir, þar af leiðandi skrifa ég fleiri. Flestir taka því vel að ég sé að benda á hvað stendur í Biblíunni, en það er alltaf aðrir sem verða mjög reiðir og skrifa langar athugasemdir eða senda mér tölvupóst um hvað ég er vitlaus. Ég held að ég hafi heyrt allar afsakanir sem til eru varðandi Biblíuna. Allt sem er neikvætt, eða hentar ekki, er auðvitað bara tekið úr samhengi eða barn síns tíma. Guð forði manni frá því að kalla Gamla Testamenntið hluti af Biblíunni.

“Topp 20: Hlutir sem eru bannaðir í Biblíunni” var aðallega skrifuð til að benda á hversu heimskulegt það er að nota Biblíuna sem afsökun fyrir fordómum gegn samkynhneigðum. Það voru margir mjög öruggir með það að greinin mín breytti engu, því að reglurnar voru allar úr Gamla Testamenntinu og voru ekki reglur sem kristnir eiga að fara eftir… nema að samkynheigðir væru vondir, það mátti standa. Það er rétt að samkynhneigð er fordæmd í Nýja Testamenntinu, en hvað annað stendur í því riti? Skoðum hvaða reglur það rit setur um konur…

Sömuleiðis vil ég að konur séu látlausar í klæðaburði, ekki með fléttur og gull eða perlur og skartklæði heldur skrýðist góðum verkum eins og sómir konum er segjast vilja dýrka Guð. Fyrra Tímóteusarbréf, 2:9-10.

Skart ykkar sé ekki ytra skraut, hárgreiðslur, gullskraut og viðhafnarbúningur heldur hinn huldi maður hjartans, búinn óforgengilegri fegurð hógværs og hljóðláts anda. Þetta er dýrmætt í augum Guðs. Fyrra Pétursbréf, 3:3-4.

Þetta fara reyndar flestar konur eftir. Man ekki hvenær ég sá konu síðast með gull eða perlur. Konur vita að það er dýrmætt í augum drottins að þær gangi ekki í einhverjum viðhafnarbúningum og fara eftir því.

En sérhver kona, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs berhöfðuð, óvirðir höfuð sitt. Það er hið sama sem hún hefði látið krúnuraka sig. Ef konan því vill ekki hylja höfuð sitt, þá láti hún klippa sig. En ef það er óvirðing fyrir konuna að láta klippa eða raka hár sitt, þá hafi hún á höfðinu. Fyrra Korintubréf, 11:5-9.

Meina, konur eiga að vera með sítt hár, annað er hneisa. Er til of mikils mælst með að segja að konur eigi að hylja höfuð sitt með síðu hári þegar þær biðja til drottins?

Kona á að læra í kyrrþey í allri auðmýkt. Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum heldur á hún að vera kyrrlát. Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva. Adam lét ekki tælast heldur lét konan tælast og gerðist brotleg. Fyrra Tímóteusarbréf, 2:11-14.

Vá… Ég held að ég hafi ekki haft karlkyns kennara fyrr en í gagnfræðiskóla, nema í leikfimi. Allar þessar konur að kenna. Skammarlegt. Vissuð þið að forsætisráðherrann okkar er kona? Forsætisráðherra hefur alveg vald yfir fullt af mönnum. Þetta er ekkert tengt neinum tíma í sögu mannkyns heldur, þetta er útaf því að Adam var búin til fyrst og Eva gerðist brotlæg. Þessu trúum við, er það ekki?

Eins og siður er í öllum söfnuðum hinna heilögu skulu konur þegja á safnaðarsamkomum því að þeim er ekki leyft að tala heldur skulu þær hlýða eins og líka lögmálið býður. En ef þær vilja fræðast um eitthvað, þá skulu þær spyrja eiginmenn sína heima. Konum sæmir ekki að tala á safnaðarsamkomu. Fyrra Korintubréf, 14:33-35.

Það er auðvitað vel þekkt að konur eiga að spyrja eiginmenn sína í einrúmi ef þær vilja fræðast um eitthvað en ég hef heyrt að það séu kvenkyns prestar til. Hvernig er það hægt? Hvernig er hægt að vera prestur ef þú mátt ekki tala inn í kirkjum? Ég hugsaði fyrst að kvenkyns prestar færu bara með fólkið út en Nýja Testamenntið segir “safnaðarsamkomum,” svo konur eiga í raun að þegja alltaf þegar söfnuður kemur saman. Veit ekki hvað þær gera.

En ég vil að þið vitið að Kristur er höfuð sérhvers karlmanns, að karlmaðurinn er höfuð konunnar og Guð höfuð Krists. Fyrra Korintubréf, 11:3.

Karlmaður á ekki að hylja höfuð sitt því að hann er ímynd Guðs og endurspeglar dýrð hans en konan endurspeglar dýrð mannsins. Því ekki er karlinn af konunni kominn heldur konan af karlinum og ekki var heldur karlinn skapaður vegna konunnar heldur konan vegna karlsins. Fyrra Korintubréf, 11:5-9.

Sýnið Kristi lotningu og hvert öðru auðsveipni: konurnar eiginmönnum sínum eins og Drottni. Því að maðurinn er höfuð konunnar eins og Kristur er höfuð og frelsari kirkjunnar, líkama síns. En eins og kirkjan lýtur Kristi, þannig lúti og konurnar eiginmönnum sínum í öllu. Efesubréfið, 5:21-24.

En sem sagt, hver og einn skal elska eiginkonu sína eins og sjálfan sig en konan beri lotningu fyrir manni sínum. Efesubréfið, 5:33.

Konur, verið undirgefnar eiginmönnum ykkar eins og sómir þeim er Drottni heyra til. Kólussubréfið, 3:18.

Eins skuluð þið, eiginkonur, vera eftirlátar eiginmönnum ykkar til þess að jafnvel þeir sem vilja ekki hlýða orðinu geti unnist orðalaust við hegðun kvenna sinna þegar þeir sjá ykkar grandvöru og skírlífu hegðun.  Fyrra Pétursbréf, 3:1-2.

Ummm… No comment.

http://www.youtube.com/watch?v=IiIJOB0GLW4

-Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook.

Topp 10: Mest ógnvekjandi ’90s sjónvarpsefni
Jújú, í minningunni þá var tíundi áratugurinn flottur. Nintendo, GameBoy, Super Nintendo, pogs, körfuboltaspjöld, The Boys, Seinfeld, Michael Jordan, Skólarapp… Allt frábært og töff en helstu minningarnar sem ég hef eru tengdar sjónvarpsefni sem hræddi úr mér líftóruna. Ákvað að fara í gegnum skelfilegustu minningarnar og sjá hvað stendur enn upp úr í minninu og hvernig efnið lítur út í dag. Niðurstaðan var þessi grein og margar andvöka nætur.

10. Spitting Image

Ótti: Breskir stjórnmálamenn

http://www.youtube.com/watch?v=vr-Ia45UJ6Q

Ég veit ekki hvort fólk muni almennt eftir Spitting Image eða Spéspegli eins og þeir hétu í dagskrá Stöðvar 2. Ímyndið ykkur Spaugstofuna nema í bretlandi og með grotesque brúðum. Ég horfði á þá, bæði í sjónvarpi og á uppáteknum VHS spólum, en ég skildi líklegast mjög fáa brandara þannig að ég hef horft á þetta meira sem hryllingsefni. Það kemur mér samt ennþá á óvart hvað ég lærði mikið um breska menningu og sögu í gegnum þessa þætti. Margaret Thatcher var helsta skrímslið í þeim seríum sem ég sá. Með hverri seríu varð hún meira og meira eins og Angelica Huston í The Witches. Greyið konan.

Í dag? Brúðurnar eru ekki eins skelfilegar í dag, skiljanlega, og að horfa á ‘Spitting Image’ þátt í heild sinni núna er eins og að horfa á 20 ára gamlan Spaugstofu þátt og búast við að fatta brandarana.

9. Unsolved Mysteries

Ótti: Óráðnar ráðgátur sem gátu hugsanlega komið aftan að mér

http://www.youtube.com/watch?v=V_jMOVdBzs0

Unsolved Mysteries voru þættir sem fjölluðu um óráðnar ráðgátur. Það var talað við fólk sem tengdist málunum eða þekkti til þeirra og atriði voru leikin til að fylla í eyðurnar. Sum málin voru augljóslega eitthvað sem gerðist í raunveruleikanum; glæpir og annað því um líkt en minnisstæðustu þættirnir fjölluðu um hluti sem voru yfirnáttúrulegir. Geimverur, skrímsli, draugar… Það var litið mjög alvarlegum augum á allt og áhorfandinn átti að trúa því sem hann sá. Sá þáttur sem ég gleymi aldrei fjallaði um draug sem hafði fest ráð sitt i innisundlaug. Það voru sýnd grænleit myndbönd sem tekin höfðu verið um miðja nætur við sundlaugina. Hlutir hreyfðust og duttu í vatnið. Allt var voða spúkí. Þemalagið var líka voðalega draugalegt. Þetta var kynnt sem raunveruleiki, þannig að auðvitað varð maður hræddur.

Í dag? Vá, hvað þessir þættir voru cheap.

8. The Adventures of Mark Twain

Ótti: Leir

http://www.youtube.com/watch?v=fBGGAjMg9vw

Veit ekki af hverju ég tók þessa mynd oft í Stá Videó á sínum tíma en ég tel líklegast að það hafi verið sjálfspíningarhvöt.

Í dag? Jesús, hvað þetta er creepy. Myndin er frekar leiðinleg í heild sinni samt.

7. BBC Prime

Ótti: Bretlandseyjar (og creepy ’70s sjónvarpsefni)

http://www.youtube.com/watch?v=c3DcChXNyYQ

Allt sem var sýnt á BBC Prime var sérkennilegt og gamaldags. Myndin var alltaf loðin og kornótt. Leikararnir í öllu voru ófríðir. Ef tæknibrellur voru í þættinum, þá voru þær mjög cheap. Allt var skrítið. Okay, ég er aðallega að tala um tvennt: Doctor Who og The Magic Roundabout. Doctor Who voru svakalega óþægilegir þættir fyrir mig. Veit ekki af hverju. Held að byrjunin hafi bara fríkað mig út. Ég hef aldrei verið mikið fyrir það að fara snemma að sofa, svo ég vakti oft lengst af öllum á heimilinu (í gamla daga þá voru grunnskólar fyrir og eftir hádegi, og ég var eftir hádegi). Af einhverri ástæðu, þá var The Magic Roundabout maraþon svakalega oft á dagskrá á BBC Prime eftir miðnætti. The Magic Roundabout er skelfilegasta barnaefni sem hefur verið framleitt. Það var bara einn karl sem talaði inná allar persónurnar og þær voru allar bara creepy leikföng og þemað…

Þemalagið er andardráttur Satans.

Í dag? Ég hef ennþá sömu skoðun á öllu varðandi The Magic Roundabout en ég elska gömlu Doctor Who þættina í dag.

6. Þemalög úr sjónvarpsþáttum

Ótti: Tónar sem gátu rifið sálu mína í sundur

http://www.youtube.com/watch?v=9WcIf8Ok5sw

Ég er ennþá staðfastur á því að þemað úr Are You Afraid of the Dark sé lagið Sveitin Milli Sanda, sem er draugalegasta íslenska lagið. Krakkar í dag vita líklegast ekkert hvað þemalög eru þar sem að enginn þáttur virðist hafa þau lengur, en í gamla daga þá voru opnunartitlarnir á þáttum allt að 2 mínútur í lengd. Þemað var því svakalega mikilvægt því það setti í gang þann tón sem fylgdi þættinum. Besta dæmið um það er L.A. Law en það voru að minnsta kostu tvær útgáfur af þemanu, eitt var notað þegar þátturinn var alvarlegur og hitt þegar hann var á léttum nótum. Ég talaði um áhrifin sem þemað úr The X-Files hafði á mig þegar ég skrifaði um Topp 20: TV þemalögin í fyrra, þannig að það er á hreinu. Hér er ég búin að tala um The Magic Roundabout, Doctor Who og Unsolved Mysteries. Vil bæta við Tales from the Darkside, ’80s þættir en þeir voru sýndir á Sýn á tíunda áratuginum. Ekki fyrir viðkvæmna.

Í dag? Mörg af þessum þemalögum hræða mig meira en flestar draugamyndir sem gerðar eru í dag.

5. The Haunted

Ótti: Draugar og að flytja

http://www.youtube.com/watch?v=dAvAEXilvVQ

Þegar það er dagur og ég er með fólki, þá trúi ég ekki á drauga. Þegar ég er einn í myrkrinu um miðja nótt og eitthvað dettur niður, þá vil ég að dvergurinn úr Poltergeist komi og bjargi mér. Þegar Stöð 2 sýndi The Haunted árið 1994 þá var tvennt tekið fram. Hún hét Djöflagangur og var byggð á sannsögulegum atburðum. Myndin fjallar um fjölskyldu sem flytur í nýtt hús og þar eru draugar sem eru skuggar og það eru óhugnaleg hljóð sem fylgja þeim og draugarnir elta fjölskylduna þegar þau fara í útilegu og LÍKA ÞEGAR ÞAU FLYTJA Í ANNAÐ HÚS! The Haunted var frekar cheap en geðveikt áhrifarík. Ég var í hið minnsta skíthræddur og óskaði að draugabanar væru til í alvörunni.

Í dag? Hún er ekki eins áhrifarík en hún er fín.

4. Flukeman úr ‘The X-Files’

Ótti: Skrímsli

http://www.youtube.com/watch?v=ISCb_V5EWt8

Þegar Ráðgátur voru sýndar fyrst á RÚV, þá var sérstaklega tekið fram að þættirnir voru byggðir á sönnum atburðum. BYGGÐIR Á SÖNNUM ATBURÐUM!  Þetta var árið 1994 þegar internetið var ekki beint inn á hverju heimili þannig að maður þurfti bara að trúa því sem stóð í Morgunblaðinu. Ég veit ekki hvaðan RÚV fékk þessar upplýsingar, en fyrir þá sem vita ekki enn í dag, þá eru þessir stórgóðu þættir ekki byggðir á sönnum atburðum. Ekki frekar en Star Trek eða Survivor. Það voru mjög margir þættir í seríunni sem fríkuðu mig út, sérstaklega þar sem ég var hræddur við geimverur, en þátturinn ‘The Host’ í seríu tvö var toppurinn. Í þættinum lenda Fox og Mulder í Flukeman, einhverskonar mennskur bandormur… Það skipti ekki máli því hann var svo vangefið scary! Fokk, spáið í því að vera að tjilla í holræsi og þettta skrímsli hoppar upp úr vatninu? Það er verra en CHUDs.

Í dag? Horfðum á þennan þátt í sumar og ég þurfti að halda fyrir augun. Djöfull eru fyrstu seríurnar af Ráðgátum góðar.

3. The Intruders

Ótti: Gráar geimverur með stór augu

http://www.youtube.com/watch?v=fi6NSO_kTAQ

Í gamla daga þá var Stöð 2 með þátt til þess eins að auglýsa dagskrána yfir hátíðirnar. Því mun ég aldrei gleyma þökk sé páskadagskráarkynningunni árið 1992, þegar atriðið hér að ofan var sýnt. Það byrjar ca 1:20 og er til 3:00. Slökkvið ljósin. Setjið í fullscreen og horfið. Ég öskraði. Auðvitað öskraði ég. Ég var sjö ára og var ekki að búast við þessu! Svo horfði maður auðvitað á myndina af einhverri ástæðu. Einföld mynd (byggð á sönnum atburðum auðvitað) um konu sem fattar að hún hefur verið tekin af geimverum og þær eru að verja alien-human hybrids eða eitthvað álíka. The Intruders er ástæðan fyrir því að ég hræðist gráar geimverur með stór augu ennþá í dag. Fire in the Sky var frekar creepy, atriðið í Communion þegar Christopher Walken horfir á geimveru sem er að fela sig bakvið hurð var skelfilegt og The X-Files hjálpaði lítið, en The Intruders startaði skelfingunni.

Í dag? Myndin er ferlega leiðinleg en það býr enn í mér ótti að rekast á stóreygða gráa geimveru.

2. IT

Ótti: Trúðar

http://www.youtube.com/watch?v=fqupU2o8bYM

Allir þeir sem voru á barnsaldri árið 1992 og horfðu á Tim Curry leika trúðinn Pennywise í framhaldsmynd mánaðarins, Stephen King’s IT, fengu sjálfkrafa trúðafælni. Það þarf ekkert að segja meira um það.

Í dag? Á köflum er IT creepy en hún er mjög löng og ekki alveg þess virði. Samt hef ég horft á hana líklegast svona 5 sinnum síðasta áratuginn. Aðallega með fólki sem hafði ekki séð hana síðan 1992.

1. Chucky úr ‘Child’s Play’

Ótti: Dúkkur (sérstaklega andsetnar)

http://www.youtube.com/watch?v=imYvOgyU9oo

Sko. Chucky var miklu skelfilegri vera í fyrstu myndinni heldur en í framhöldunum. Ég var líka sex ára þegar ég sá Child’s Play og í kjölfarið þurfti að fjarlægja allar dúkkur af heimilinu. Þær voru settar í poka. Ég vissi ekki hvar pokinn var geymdur. Einu sinni fór ég að finna mér VHS spólu í herberginu þar sem VHS spólur voru geymdar og pokinn datt á mig og dúkkurnar hrundu allar út úr honum. Síðan þá hef ég verið gráhærður. Dúkkur eru creepy og eiga ekki að vera til. Ég held að við höfum öll ótta við hluti sem líta næstum því út eins og mannverur en eru það ekki. Geimverur, dúkkur, trúðar… Það virðist allaveganna vera þema hjá mér. Ég komst yfir basic óttan við dúkkur þegar mamma benti mér á að þetta væri bara plat og í raun fyndið og að ég ætti bara að horfa á Child’s Play 3 til að fatta það. Ég horfði á Child’s Play 3 og fattaði það en ég hef samt aldrei alveg treyst þessum ‘plast’ verum. Þökk sé internetinu get ég samt vitað að ég fékk fóbíuna fyrir dúkkum föstudagskvöldið 19. apríl 1991 og losnaði við það (að mestu) tveimur og hálfu ári síðar, föstudagskvöldið 22. október 1993. En það fyrra var þegar Stöð 2 sýndi fyrstu myndina, og það seinna þegar þriðja myndin var sýnd. Fjandans dúkkur.

Í dag? Ég varð frekar mikill aðdáandi Child’s Play seríunnar á sínum tíma og ég er einn af þeim fáu sem fílar þær ennþá í dag. Dúkkur eru ennþá verkfæri djöfulsins.

Niðurstaðan er einföld. Allt sem var sýnt í sjónvarpi á tíunda áratuginum var byggt á sönnum atburðum og cheap sjónvarpsefni var skelfilega áhrifaríkt.

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook.

Topp 5: Viðtöl sem við megum búast við í Morgunblaðinu
Að gefnu tilefni, þá er ég hér með topp fimm viðtöl sem ég held að við megum búast við að sjá í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í náinni framtíð. Auðvitað munu þau verða birt þar eins og um staðreyndir sé að ræða.

#5 „Rithöfundur týndi sér á hóteli fyrir austan.“

Þór Björnsson, rithöfundur, talar um það þegar hann tók að sér að passa hótel yfir hávetur með fjölskyldu sinni. Hann ætlaði að nýta tækifærið og klára bók sem hann var að vinna við en fljótlega kom í ljós að það var enginn friður til að skrifa. „Reymt? Já, það var sko reymt þarna. Það voru draugar útum allt. Þeir náðu að taka algjörlega stjórn á mér—það mætti segja að ég hafi týnt mér algjörlega, svo andsetinn var ég. Þeir drukku áfengi í gegnum mig. Ég hafði engu um það að ráða. Endaði að vera með líkamann fullan af áfengi allan veturinn. Náði ekkert að skrifa. Er bara ánægður að hafa komist lifandi þarna burt með fjölskylduna.“

#4 „Skelfileg reynsla í sumarbústað!“

Vinahópur lenti í þeirri skelfingu á dögunum að fara í sumarbústað í Miðhúsaskógi og vekja óvart upp illa anda. „Við vorum bara eitthvað að tjilla skiluru og svo bara alltíeinu heyrum við eitthvað spúkí hljóð og þá var bara eitthvað að gerast í kjallaranum. Urðum náttla soldið hrædd en gerðum þetta að drykkjuleik og svo bara alltíeinu þá bara heyrist bank! Og við náttla bara truth or dare skiluru og Jónki endaðu með að fara niður í kjallarann og hann finnur bara einhverja bók með andliti og eitthvað ógeð og svo lesum við úr bókinni og þá bara byrjuðu zombies að ráðast á okkur! Missti næstum hendina skiluru!“

#3 „Lífið mitt með Elvis!“

Einmanna kona á áttræðisaldri ræður um líf sitt með stórsöngvaranum Elvis Presley, en hún hefur búið með honum í Breiðholtinu í rúman áratug. „Ég sá það strax og ég leit í augun á nýja kettinum mínum páskana 1992 að þetta væri Elvis endurfæddur. Það var bara augljóst. Hann mjálmar stundum lögin sín fyrir mig og ég gef honum djúpsteiktan mat í staðinn. Hann er yndið mitt, kóngur, og síðan hann kom í líf mitt þá hefur Stórfótur alveg hætt að hrella mig.“

#2 „Kærasti mömmu var aðalvampíran!“

Við ræðum við bræður sem fluttu með móður sinni í smábæ sem reyndist vera yfirfullur af vampírum. „Mamma fékk vinnu í myndbandaleigu þarna og það var okay en okkur fannst bærinn eitthvað spes. Það voru gaurar til dæmis í bókabúðinni sem sögðu að vampírur væru á svæðinu en við trúðum því ekki. Svo var eitthvað mótórhjólagengi þarna sem ég [eldri bróðirinn] flæktist eitthvað í og þá kom í ljós að þau voru öll vampírur. Til að bæta gráu ofan á svart, þá byrjaði mamma með eiganda myndbandaleigunnar, og hann var aðalvampíran!“

#1 „Ég gaf börnunum mínum skrímsli í stað hvolps!“

Maður á fimmtugsaldri segir sorgarsögu um eyðilögð jól, þegar hann gaf börnunum sínum dýr sem hann smyglaði frá útlöndum og hélt að væri hvolpur en var í raun kínverska dýrið mogwai. „Þetta var skelfilegt, það var svo sætt til að byrja með svo asnaðist strákurinn til að gefa því að borða eftir miðnætti og daginn eftir var það í einhverskonar púpu. Við vorum hrædd um að fá sekt fyrir innfluttning á erlendu dýri án leyfis, svo við ákváðum að hafa ekki samband við yfirvöld. Seinna um kvöldið opnaðist púpan og grænt skrímsli kom út. Það leit út eins og blanda af apa og eðlu! Það réðst á konuna mína en ég náði að skjóta það með veiðirifflinum mínum, þakka guði fyrir það. Þetta var ömurleg lífsreynsla.“

Nota bene, þegar ég sagði að ríkið ætti að niðurgreiða þjónustu særingarmanna, þá var ég að djóka.

- Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook. Einnig mæli ég auðvitað með að allir fjárfesti í bókinni minni, Útburður.

Topp 5: Hlutir sem ríkið ætti að niðurgreiða
Nú á dögunum, eins og frægt er, komu nokkrar þingkonur Vinstri Grænna og Samfylkingar með þá glæsilegu hugmynd að skella pening í nefnd sem gæti athugað hvort að það ætti ekki að niðurgreiða skottulækningar. Þetta kom mörgum á óvart því að Ríkið hefur skorið mikið niður í heilbrigðismálum og getur reynst erfitt fyrir fólk að fara í óþarfa hluti eins og krabbameinsskoðun. Þetta hljómar sérkennilega en hugsunin er að þessi niðurgreiðsla mundi spara stórfé í lyfjakostnað, sem er reyndar alveg rétt. Tökum sem dæmi, ef einstaklingur með krabbamein fer t.d. til hómópata frekar en í alvöru krabbameinsmeðferð, þá sparast stórfé—reyndar þarf að taka inn í myndina að einstaklingurinn mundi hætta að greiða tekjuskatt, þar sem þú vinnur lítið undir grænni torfu. En, eins og Ólína Þorvarðar benti á í viðtali í Kastljósi, þá er það ekki þingmanna (eða lækna) að meta hvað nær allar vísindalegar rannsóknir sýna fram á, svona hlutir þurfa að fara í nefndir og, meina, hennar verk sem þingmaður er bara að varpa fram skemmtilegum spurningum um hvernig hægt er að bókstaflega brenna skattpening Íslendinga. Hér eru nokkrar hugmyndir fyrir Ólínu og vinkonur hennar.

#5 Jólasveinninn

Þessi hugmynd er ekki mín, sá hana í grein en hún er mjög skemmtileg pæling. Nú eru jólin að koma og við vitum að það er geðveikt mörg börn til í heiminum og jólasveinninn er að basla við að búa til allar gjafirnar og pakka þeim inn, með hjálp frá einhverjum álfum. Þetta hlýtur að vera svakalega kostnaðarsamt fyrir hann, bæði framleiðslan, efniviðurinn og vinnuaflið. Nú segja margir líklega „En… jólasveinninn er ekki til?“ Höfum það bara á hreinu, það er ekki mitt að ákveða hvort að jólasveinninn sé til eða ekki, þar af leiðandi legg ég til að það verði sett í gang nefnd til að sjá hvernig væri best að hjálpa jólasveininum. Ætti ríkið að niðurgreiða einhvern kostnaðarlið? Nú eða gætu álfarnir orðið ríkisstarfsmenn? Talandi um álfa…

#4 Verkalýðsfélög álfa í hólum

Við hvernig standarda eru álfar á Íslandi að vinna við? Fá þeir nóg greitt á tímann, er vinnuvikan of löng, fá þeir kaffi og meðí? Ég veit það ekki, veist þú það? Hélt ekki. Þetta þarf að fara í nefnd. Gætum fengið fólk í nefndina sem er bæði mjög tengt við náttúruna og steinana og um leið með mjög hátt tímakaup.

#3 Draugabana

Ég sá einu sinni heimildarmynd um fjóra menn sem stofnuðu fyrirtæki og sérhæfðu sig í því að bana draugum. Held að fyrirtækið hafi verið í New York? Þeir eru svo framarlega í öllu þessu þarna vestanhafs. Fyrst gekk ekkert alltof vel en svo bara, þegar fólk fattaði að þessi þjónusta var á boðstólnum, þá varð allt brjálað að gera. Ég þekki fullt af fólki sem kvartar yfir draugagangi stundum hjá sér, þannig að það er augljóst að draugar eru til. Kannski er þetta mun stærra vandamál en við höldum. Hugsa að það gæti sparað stórfé að niðurgreiða þjónustur draugabana, t.d. því að draugar halda ábyggilega vöku fyrir mörgum og þetta fólk er að kaupa einhver svefnlyf og annað, og eru þau ekki niðurgreidd??? Ekki hafa áhyggjur samt, mundi passa að minnsta kosti 50% af öllum draugabönum væru konur.

#2 Særingarmenn

Þegar ég var að ferðast um á miðöldum, þá rakst ég á mann sem var alveg á því að sonur hans, sem átti við geðraskanir að stríða, væru í raun andsetinn. Hann var alveg viss og það er næg sönnun fyrir mig. Nú á dögum er verið að krefjast vísindalegra sannana fyrir öllum sköpuðum hlutum en ég fer ekki niður á það lága plan. Það er mjög gamalt að trúa því að fólk sem er veikt á geði sé andsetið og gamalt merkir að það sé satt. Veit ekki hvort að það eru einhverjir særingarmenn á Íslandi, en það væri spurning um að fá ríkiskirkjuna í málið og við myndum greiða prestum fyrir að fara í allar stofnanir þar sem fólk með geðraskanir er og særa burt alla þá illu anda sem eru að hrjá fólkið. Mundum spara stórfé!

#1 Vampírubana

Sko, vinkona mín var alltaf eitthvað slöpp og hún fór til „alvöru“ læknis og hann tók blóðprufu og sagði að hún væri blóðlítil. Hún var náttla miður sín, að þurfa að eyða mörg hundruð þúsundum ábyggilega í einhverjar járntöflur og annað rugl sem lyfjafyrirtæki hafa augljóslega borgað læknum fyrir að vísa á. Hún ákvað að fara bara til miðils, sem benti henni á hið augljósa. Hún var blóðlítil. Hvert var blóðið að fara? Vampírur. Líklegast var að vampíra væri að koma reglulega til hennar á nóttinni og drekka úr henni blóðið. Þetta var svo augljóst eftir á. Mín fór þá bara og keypti sér fullt af hvítlauk og byrjaði að borða hann hráan og viti menn, nokkrum mánuðum seinna þá var hún ekkert slöpp lengur! Sparaði sér ábyggilega 80 þúsund kall eða eitthvað! Án þess að taka afstöðu hvort vampírur séu til eða ekki, þá eru vampírur augljóst vandamál á Íslandi svo ég verð að segja að það ættu að vera hreinlega ríkisreknir skólar sem mundu þjálfa fólk upp í að verða alvöru vampírubanar.

Eins og ég segi, er bara að kasta fram skemmtilegum spurningum…

- Stefán Birgir Stefáns

Ef þér líkaði þessi grein, þá geturðu fylgst með sbs.is á Facebook. Einnig mæli ég auðvitað með að allir fjárfesti í bókinni minni, Útburður.