Inngangur að kennarahandbók
Hverjum skólastarfsmanni ætti að vera bæði ljúft og skylt að hafa augun hjá sér þegar nemandi mætir illa, lokar á félagstengsl, lækkar í einkunnum, eða sýnir aðra áhyggjuvaldandi hegðun. Hér getur skóli gripið inn í og aðstoðað ungan brotaþola í átt að betri líðan.
Kynferðislegt og annað kynbundið ofbeldi hefur löngum fylgt mannlegu samfélagi en fremur nýlega fór loks af stað umræða um þann umfangsmikla og skaðlega samfélagsvanda. Á skömmum tíma hefur skapast menning í okkar heimshluta fyrir því að brotaþolar opni sig, skili skömminni og kalli gerendur sína til ábyrgðar. Samkvæmt gögnum Stígamóta til áratuga eru 70% brotaþola kynferðisofbeldis, sem leita til samtakanna, undir 18 ára aldri við fyrsta brot. Oft er gerandi ofbeldisins á svipuðum aldri og brotaþolinn, en 60% gerenda er undir þrítugu. Hvergi er því að finna stærra samansafn bæði þolenda og geranda kynferðisofbeldis en í skólum landsins.